Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 mánudaginn 12. maí 2025. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 til 1.500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS151155 og að fjárhæð 500 til 1.500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS 39 0303. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Lánasjóðurinn hefur boðið aðalmiðlurum sjóðsins Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka og Landsbankanum að taka þátt í útboðinu.
Lánasjóður sveitarfélaga - Útboð LSS 39 0303 og LSS151155
Seeking Alpha / 53 minutes ago 1 Views
Comments